Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27.03.2025 - 27.03.2025

Ársþing HSK 2025

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
19

Heiðranir á héraðsþingi HSK

14.03.2017

Á héraðsþingi HSK sem haldið var á Hótel Örk í Hveragerði sl. laugardag var Guðríður Aadnegard, formaður HSK, sæmd gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Silfurmerki ÍSÍ hlutu Baldur Gauti Tryggvason Umf. Þjótanda og Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni. Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, sem einnig er formaður Heiðursráðs ÍSÍ, afhenti viðurkenningarnar.

Á myndinni má sjá Hafstein ásamt Guðríði, Rut og Baldri við afhendinguna.