Sumarfjarnám hefst 12. júní
12. júní nk. hefst sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ. Námið tekur átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi og er allt í fjarnámi. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000. Öll námskeiðsgögn eru innifalin.
Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 9. júní. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.
Skráning fer fram hér.
Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 og 863-1399 eða á vidar@isi.is