Ár síðan Ólympíuleikarnir voru settir í Ríó
Þann 5. ágúst sl. var ár síðan að Ólympíuleikarnir 2016 voru settir í Ríó í Brasilíu. Var þetta í fyrsta sinn sem Ólympíuleikarnir fóru fram í Suður-Ameríku.
Setningarhátíðin fór fram á Maracana-leikvanginum og voru um þrír milljarðar manna sem fylgdust með hátíðinni um allan heim. Hér má sjá setningarhátíð leikanna.
Alls tóku um 10.500 íþróttamenn þátt í leikunum. Flestir íþróttamenn komu frá Bandaríkjunum, eða 554. Íslendingar sendu 8 keppendur til leiks.
Lokahátíð Ólympíuleikanna fór fram þann 21. ágúst.
Ólympíuleikarnir fara næst fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Nýlega birti skipulagsnefnd leikanna nýtt tónlistarmyndband fyrir Ólympíuleikana 2020 sem má sjá hér.
10.616 íþróttamenn munu keppa í 28 íþróttagreinum, þar af eru 5 nýjar íþróttagreinar á dagskrá. Sjá má íþróttagreinarnar sem keppt verður í hér.