Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Hjólum í skólann 2017

14.09.2017

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir hvatningarverkefninu Hjólum í skólann 2017 þar sem framhaldsskólanemendur og starfsfólk framhaldsskólanna er hvatt til að nota virkan ferðamáta til að ferðast til og frá skóla. Virkur ferðamáti felst í því að nýta sitt eigið afl til að ferðast með því að ganga, hjóla, nota hjólabretti eða línuskauta en einnig má nýta sér strætó til samgangna. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Hér má sjá vefsíðu Hjólum í skólann.

Fyrirkomulagið er þannig að skólar skrá sig inn á vefsíðu Hjólum í skólann með stuttri lýsingu á aðstöðu hjólafólks í skólanum og hvað skólinn ætlar að gera til að hvetja nemendur og starfsfólk til að nýta sér virkan ferðamáta til og frá skólanum. Opið er fyrir skráningu á framhaldsskólum núna og út septembermánuð og eru kennarar og skólastjórnendur þeirra hvattir til að skrá sinn skóla ásamt því að hafa viðunandi hjólaaðstöðu fyrir hjólreiðafólk.

Góð þátttaka var hjá nemendum og starfsfólki framhaldsskóla í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna fyrr á árinu og því tilvalið að skrá sig einnig í Hjólað í skólann.

Nú þegar hafa sjö framhaldsskólar skráð sig. Þeir skólar sem eru virkir þátttakendur í Hjólum í skólann 2017 munu hljóta veglegan viðurkenningarplatta til marks um sína þátttöku að verkefninu loknu.

ÍSÍ minnir alla þátttakendur að vera virkir í að senda myndir og frásagnir hér á vefsíðu Hjólum í skólann eða með tölvupósti á magnusg@isi.is

Þetta árið er engin skráning á ferðum en hægt er að halda utan um sína hreyfingu í skráningarkerfi Lífshlaupsins sem er virkt allt árið um kring hér á vefsíðu Lífshlaupsins.