Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Ráðstefna IOC um konur í leiðtogastörfum

13.10.2017

Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Ólympíunefnd Litháen stóðu fyrir ráðstefnu um konur í leiðtogastörfum 10.-11. október sl. á Radisson Blu hótelinu í Vilnius. Um 200 þátttakendur frá 40 Ólympíunefndum, frá Alþjóðaólympíunefndinni, Evrópusambandi ólympíunefnda (EOC) og mörgum alþjóðasamböndum íþrótta, sóttu ráðtefnuna. Thomas Bach, forseti IOC, setti ráðstefnuna og sagði Litháen vel til þess fallið að halda slíkan viðburð í ljósi þess að landið býr yfir sterkum kvenfyrirmyndum þar sem m.a. forseti landsins er kona og forseti Ólympíunefndar Litháen er einnig kona. Ólympíunefnd Litháen hefur einnig haft frumkvæði að mörgum góðum átaksverkefnum um jafnrétti kynjanna og konur í leiðtogastörfum.

Halla Tómasdóttir, fyrrum forsetaframbjóðandi á Íslandi, var aðal fyrirlesari ráðstefnunnar og hélt mjög hvetjandi og kröftugan fyrirlestur á persónulegu nótunum um konur í leiðtogastörfum. Fyrirlestur hennar vakti gríðarlega mikla athygli meðal ráðstefnugesta og hlaut hún mikið lof fyrir innlegg sitt til ráðstefnunnar. Halla var mætt til leiks í landsliðstreyju KSÍ og í lok fyrirlestursins gaf hún boltann, í bókstaflegum skilningi, til karlmannanna í salnum með ósk um að þeir "tækju boltann" og leggðu sitt af mörkum með því að hvetja og styðja konur til leiðtogastarfa innan íþróttahreyfingarinnar. Ráðstefnan fór að mestu leyti fram með pallborðsumræðum og spurningum frá þátttakendum og kom margt áhugavert fram í þeim umræðum sem spunnust út frá umfjöllunarefni pallborðsins hverju sinni. 

Meðal annars kom eftirfarandi sterkt fram á ráðstefnunni: Jafnrétti kynjanna er ekki bara á höndum kvenna heldur beggja kynja. Jafnvægi í skiptingu kynja í stjórnunarstöðum leiðir af sér betri stjórnun og betri stjórnunarhætti. Ekkert mun breytast nema bæði karlar og konur sameini krafta sína til breytinga og að núverandi leiðtogar í íþróttahreyfingunni skuldbindi sig til að ná því markmiði að jafna skiptingu kynjanna innan viðkomandi samtaka. Markmið IOC er að konur verði í a.m.k. 30% kjörinna embætta innan íþróttahreyfingarinnar fyrir árið 2020.

Finna má yfirlýsingu ráðstefnunnar í heild með því að smella hér.

Ráðstefnuna sóttu Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri ÍSÍ.

Myndir með frétt