Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íslendingar í nefndum FIA

22.12.2017

Akstursíþróttasamband Íslands (AKÍS) er í virku samstarfi um akstursíþróttir við önnur lönd og er aðili að Alþjóðasamtökum akstursfélaga, Federation Internationale de L'Automobile (FIA) ásamt norður Evrópusvæði alþjóðaakstursíþróttasambandsins (FIA North European Zone).

Á síðustu árum hefur AKÍS tekið virkari þátt í nefndastörfum FIA NEZ. Tengsl við nágrannalönd Íslands hafa þannig verið efld ásamt því að unnið hefur verið að breytingum á regluverki á Íslandi þannig að það verði líkara því sem gerist hjá öðrum löndum á svæðinu. Sú vinna hefur heppnast vel, meðal annars með samstarfi um torfæru en unnið er að svipuðum markmiðum varðandi aðrar keppnisgreinar.

Stefnt hefur verið að því í mörg ár að AKÍS taki aukinn þátt í nefndarstörfum FIA með einhverjum hætti. Bæði gefur þetta Íslandi og íslenskum akstursíþróttum meiri sýnileika ásamt því að veita AKÍS innsýn og jafnvel áhrif á ákvarðanatöku hjá FIA. Yfirleitt er það margra ára ferli að ná inn nefndarmanni í nefndir FIA, því margir eru um hituna. Sett var vinna í það hjá AKÍS að ná inn íslenskum fulltrúa í nefndir FIA.

Í samráði við stjórnendur átaksins Konur í akstursíþróttum var lagt til að Guðný Guðmarsdóttir yrði tilnefnd til setu í FIA Women in Motorsport Commission.
Jón Bjarni Jónsson er vel þekktur í spyrnuheiminum og tilnefndi AKÍS hann til setu í FIA Drag Racing Commission.
Á ársþingi FIA, sem haldið var í París dagana 4. til 8. desember síðastliðinn, voru bæði Guðný og Jón Bjarni kjörin í þær nefndir sem þau voru tilnefnd í. Einnig var ákveðið að Ísland muni halda næsta FIA Women in Motorsport þing sem haldið verður árið 2020.

ÍSÍ óskar Guðnýju og Jóni Bjarna til hamingju með að vera fyrstu Íslendingar sem sitja sem aðalmenn í nefndum FIA. Vonandi verður þetta til þess að Ísland eignist fulltrúa í fleiri nefndum og starfshópum innan FIA.

Fréttina má lesa á vefsíðu Akstursíþróttasambands Íslands hér.