Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Íþróttir fyrir fólk á besta aldri

06.03.2018

ÍSÍ leggur áherslu á málaflokka tengdum heilsu og fræðslu, t.d. með almennu fræðslustarfi um gildi hreyfingar. Eitt af áhersluatriðum íþróttahreyfingarinnar er íþróttastarf og hreyfing eldri borgara. Árið 2005 var stofnuð nefnd innan ÍSÍ sem ber heitið Nefnd um íþróttir 60+. Markmiðið með nefndinni er að efla íþróttastarf eldri borgara, vinna að fræðslumálum og standa fyrir átaksverkefnum eftir atvikum. 

Hermann Sigtryggsson, sem situr í nefndinni um íþróttir 60+, tók sig til nýverið og setti saman veggspjald úr bæklingnum „Líkamsæfingar fyrir fólk á besta aldri“ sem hangir nú uppi í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Þannig geta þeir sem þar ganga um nýtt sér þessar æfingar og teygjur. 

Fræðslubæklingurinn „Líkamsæfingar fyrir fólk á besta aldri“, sem nálgast má hér, er gefinn út sem hvatning til fólks um að stunda reglulega líkamsrækt. Þar er að finna fjölbreyttar æfingar sem allir ættu að geta stundað daglega. Meðal æfinga eru ganga, æfingar í vatni, æfingar fyrir háls og herðar, bak og kvið, fætur og arma. Fróðleikur um gildi líkamsræktar fyrir heilsuna er settur fram og sömuleiðis holl ráð um næringu, svefn, slökun, vernd gegn beinþynningu og fleira. Hægt er að nálgast eintak af bæklingnum á skrifstofu ÍSÍ endurgjaldslaust.

Myndir með frétt