Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Hjólað í vinnuna 2. - 22. maí

26.04.2018

Nú er vika í að Hjólað í vinnuna 2018 hefjist en keppnin stendur yfir frá 2. – 22. maí nk. Skráning er hafin og fer vel af stað, en hægt er að skrá sig til leiks á vefsíðu Hjólað í vinnuna hér.

Setningarhátíð Hjólað í vinnuna fer fram miðvikudaginn 2. maí kl. 8:30 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. ÍSÍ hvetur alla til að hjóla við og fá sér góða hressingu í tilefni dagsins.

Nokkrir skemmtilegir leikir eru í gangi á meðan Hjólað í vinnuna stendur yfir. ÍSÍ hvetur fólk til þess að taka þátt og senda inn reynslusögur, myndir eða myndbönd. Sjá nánar hér

 

Hjólað í vinnuna - Örninn from ISI on Vimeo.