Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Ársþing HNÍ

04.06.2018

Ársþing Hnefaleikasambands Íslands (HNÍ) fór fram fimmtudaginn 30. maí 2018 sl. í húsakynnum ÍSÍ. Engar breytingar lágu fyrir fund í regluverki HNÍ. Ný stjórn var kjörin og var Ásdís Rósa Gunnarsdóttir endurkjörin formaður sambandsins. Með henni voru endurkjörin í stjórn Árni Stefán Ásgeirsson (varaformaður) Jónas Heiðar Birgisson (gjaldkeri), Áslaug Rós Guðmundsdóttir (ritari). Meðstjórnendur voru kosnir Sólveig Harpa Helgadóttir, Rúnar Svavarsson og Sigríður Birna Bjarnadóttir. Varamenn voru kosin Birna Árnadóttir, Ingólfur Þór Tómasson og Máni Borgarsson.

Engar breytingar voru gerðar á gjaldskrá HNÍ. Ársreikningur og fjárhagsáætlun voru samþykkt.

Árni Stefán Ásgeirsson kynnti afreksstefnu HNÍ en sú vinna er nú á fyrstu stigum. Var sú afreksstefna sem stjórn lagði fyrir samþykkt með breytingartillögum frá ÍSÍ fyrir utan nokkur atriði sem stjórn var falið að vinna frekar að áður en afreksstefnu yrði skilað inn.