Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Ásdís Rósa endurkjörin sem formaður HNÍ

06.06.2018

Ársþing Hnefaleikasambands Íslands fór fram sunnudaginn 21. maí í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu þó nokkrar breytingar á regluverki HNÍ, m.a. vegna breytinga hjá AIBA, reglum alþjóðahnefaleikasambandsins. Ný stjórn var kjörin og var Ásdís Rósa Gunnarsdóttir endurkjörin formaður sambandsins. Með henni voru endurkjörin í stjórn Árni Stefán Ásgeirsson (varaformaður), Jónas Heiðar Birgisson (gjaldkeri), Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir (ritari) og Áslaug Rós Guðmundsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Sólveig Harpa Helgadóttir meðstjórnendur.  Endurkjörnir varamenn voru Oliver Máni Oliversson og Máni Borgarsson. Nýr varamaður í stjórn er Sigríður Birna Bjarnadóttir.
Á þinginu var meðal annars samþykkt breyting á gjaldskrá HNÍ og regluverk diplomahnefaleika staðfest og innlimað í regluverk HNÍ.
Hnefaleikafélag Akureyrar varð staðfest sem fullgilt aðildarfélag innan HNÍ frá og með ársþinginu. 
Fulltrúi ÍSÍ var Gunnar Bragason gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ og hélt hann stutta tölu á þinginu.

Ársskýrslu HNÍ má finna með að smella hér.