Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Styrkir úr Íþróttasjóði

22.08.2018

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
    útbreiðslu- og fræðsluverkefna , sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að þátttöku barna af erlendum uppruna
  • íþróttarannsókna
  • verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga, sjá hér

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknakerfi Rannís fyrir kl. 16:00 mánudaginn 1. október 2018.

Nánar um íþróttasjóð

Fyrir hverja?
Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.

Til hvers?
Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að aukinni þátttöku barna af erlendum uppruna. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Umsóknarfrestur
Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2018, kl. 16:00.

Hvert er markmiðið?
Íþróttasjóður byggir á Íþróttalögum nr. 64/1998 og reglugerð um sjóðinn nr. 803/2008. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnum og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu

Hverjir geta sótt um?
Öll íþrótta- og ungmennafélög í landinu. Einnig þeir sem stunda rannsóknir á sviði íþrótta og lýðheilsu.

Hvað er styrkt?
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta;

1. Sérstakra verkefna íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna og skal einkum lögð áhersla á verkefni sem uppfylla einhver eftirfarinna skilyrða; 
    a. Stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga og sérstök áhersla verður að þessu sinni á verkefni sem stuðla að aukinni þátttöku barna af erlendum uppruna
    b. Eflingu þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi
    c. Auka gildi íþróttastarfs í forvörnum
    d. Auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu

3. Íþróttarannsókna
4. Verkefnum samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Skilyrði úthlutunar
Verkefnin þurfa að falla að markmiðum Íþróttalaga. Þar segir að íþróttir séu hvers konar líkamleg þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti.