Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Myndakeppni Forvarnardagsins 2018

26.11.2018

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti í gær verðlaun í myndakeppni Forvarnardagsins. Verðlaunin hlutu þau Jóhanna Inga Elfarsdóttir, Leó Einarsson og Magnús Bjarki Jónsson. Jóhanna er nemandi við Seljaskóla í Reykjavík, Magnús er í Varmahlíðarskóla og Magnús í Álftamýrarskóla - Háaleitisskóla. 

Forvarnardagur forsetans er árlegur viðburður, en hann fór fram 3. október sl. Við það tækifæri heimsótti forseti Íslands nemendur við Menntaskólann í Hamrahlíð og Grunnskóla Grindavíkur og ræddi við þau um forvarnir. Áherslan í máli hans var fjölgun nemenda í grunnskólum sem nota rafrettur og aukin notkun lyfseðilsskyldra lyfja. Í tengslum við Forvarnardaginn var efnt til myndasamkeppni fyrir ungmenni fædd á árunum 2002-2004 og gátu þau tekið myndir og birt á samfélagsmiðlum merktar #forvarnardagur18. Valdar voru þrjár bestu myndirnar og þær verðlaunaðar. Í verðlaun voru 50.000 króna inneign hjá 66°Norður.

Verðlaunaafhendingin fór fram á Bessastöðum í gær 25. nóvember. Auk ungmennanna mættu fjölskyldur þeirra, Alma Möller landlæknir og fulltrúar þeirra sem standa að Forvarnardeginum. Dagurinn er unninn að frumkvæði embættis forseta Íslands í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), Samband íslenskra sveitafélaga, Bandalag íslenskra skáta og Reykjavíkurborg.