Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Bannlisti WADA 2019 - Helstu breytingar

01.12.2018

Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunin (WADA) hefur nú birt samantekt um helstu breytingar á bannlista WADA 2019 ásamt útskýringum. Á listanum má sjá hvaða efni og aðferðir eru bannaðar bæði í keppni og utan keppni og hvaða efni eru bönnuð í ákveðnum íþróttagreinum. Hér má sjá samantekt um helstu breytingar ásamt útskýringum.

Bannlisti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar er uppfærður árlega, en á hverju ári fer hann í gegnum ákveðið ferli sem tekur níu mánuði, þar sem allt sem tengist efnum og aðferðum er skoðað. Listinn er síðan birtur áður en hann tekur gildi til þess að íþróttafólk geti kynnt sér listann og gert viðeigandi ráðstafanir. 

ÍSÍ hvetur alla sem hlut eiga að máli að kynna sér bannlista WADA 2019.