Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Ráðstefna um íþróttir og ofbeldi 30. janúar

24.01.2019

Ráðstefnan „Eru íþróttir leikvangur ofbeldis?- vinnum gegn því“ fer fram miðvikudaginn 30. janúar frá kl. 10:30 – 17:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af dagskrá Reykjavíkurleikanna. Erlendir og íslenskir fyrirlesarar munu deila reynslu sinni, sögum og fræðum. Bakgrunnur fyrirlesara er mjög fjölbreyttur allt frá fræðimönnum sem hafa rannsakað málefnið um árabil til forsvarsmanna í íþróttahreyfingunni sem vinna að forvörnum og fræðslu og þolenda af báðum kynjum sem segja sína sögu. Einnig verður boðið verður upp á þrjár vinnustofur um málefnið fimmtudaginn 31.janúar í íþróttamiðstöðinni í Laugardal frá kl. 10-12 þar sem áhersla verður á greiningu og viðbrögð, samvinnu að öruggara umhverfi og öflugri forvarnir.

Það eru Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Reykjavíkurborg, Ungmennafélag Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík sem standa að ráðstefnunni og málstofunum.

Dagskrá og nánari upplýsingar eru að finna á rig.is.

ÍSÍ hvetur sína sambandsaðila til þess að skrá sig á ráðstefnuna. Málefnið er mikilvægt og snertir okkur öll.