Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Súpufundur um heilahristing í dag

06.02.2019

Í dag fer fram súpufundur á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli frá 12:00-13:00 þar sem viðfangsefnið er höfuðhögg/heilahristingur í íþróttum. ÍSÍ og KSÍ standa fyrir fundinum. Þar mun Lára Ósk Eggertsdóttir Classens sem er læknir á bráðamóttöku halda fyrirlestur og Ragna Margrét Brynjarsdóttir, mastersnemi í sálfræði og María Björnsdóttir sjúkraþjálfari segja reynslusögur, en þær eru báðar körfuboltakonur sem fengu heilahristing í fyrra. Frítt er á viðburðinn og boðið verður upp á súpu og brauð.

Viðburðurinn veitir 2 endurmenntunarstig til þeirra þjálfara sem eru með UEFA/KSÍ A eða UEFA/KSÍ B þjálfararéttindi.

Sýnt verður beint frá fyrirlestrinum á miðlum KSÍ, t.d. hér á youtube síðu KSÍ.

Skráning á viðburðinn er hér.