Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Glæsileg setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar

11.02.2019

Setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fór fram í gærkvöldi. Aron Máni Sverrisson, keppandi í alpagreinum, var fánaberi Íslands á setningarhátíðinni. Hægt er að sjá setningarhátíðina á facebook síðu EYOWF hér. Íslendingar eiga 12 keppendur á hátíðinni. Með fréttinni má sjá mynd af hópnum á leið á setningarhátíðina og mynd af Aroni Mána Sverrissyni fánabera. Fleiri myndir má nálgast hér á myndasíðu ÍSÍ og munu fleiri myndir hlaðast þar inn á meðan á hátíðinni stendur.

Hægt verður að fylgjast með íslenskum þátttakendum á hátíðinni í gegnum miðla ÍSÍ:
Vefsíða ÍSÍ
Facebook ÍSÍ
Instagram ÍSÍ
SnapChat ÍSÍ (á meðan á hátíðinni stendur): isiiceland

Vefsíða leikanna
Facebook síða leikanna

#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo

 

Myndir með frétt