Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Lífshlaupið 2019 - Vertu með!

13.02.2019

Lífshlaupið 2019 fer vel af stað og enn er nægur tími til að skrá sig til leiks en hægt er að skrá sig alveg fram á síðasta dag. Frá og með 18. febrúar tekur svokölluð fimm daga regla gildi en þá verður einungis hægt að skrá hreyfingu fimm daga aftur í tímann, en ekki meira en það. Fram að því er hægt að skrá allt frá fyrsta degi (6. febrúar). 

Lífshlaupið er landskeppni í hreyfingu sem er ekki einungis hvatning fyrir einstaklinga til að taka sig á og byrja að bæta lífsstíl með aukinni hreyfingu, heldur er það skemmtileg keppni milli vinnustaða og frábært tækifæri fyrir vinnustaði til þess að efla liðsandann/starfsandann á vinnustaðnum. Vinnustaðir geta skráð eins mörg lið og þeir vilja og efnt til keppni innan vinnustaðarins. Öll lið telja þó saman undir einum vinnustað í heildarkeppni Lífshlaupsins.

Á meðan Lífshlaupinu stendur er skráningarleikur í gangi en einn heppinn þátttakandi í vinnustaðakeppninni, einn í framhaldsskólakeppninni og einn bekkur í grunnskólakeppninni eru dregin út alla virka morgna í morgunþættinum Morgunverkin á Rás 2.

Þar að auki er myndaleikur í gangi en á meðan á Lífshlaupinu stendur eru allir hvattir til að deila myndum af þátttöku sinni í gegnum vefsíðuna og einnig á Facebook eða Instagram með myllumerkinu #lifshlaupid. Allir myndasmiðir fara í lukkupott í myndaleik Lífshlaupsins og eiga möguleika á að vera dregnir út og vinna flotta vinninga. Þá verða einnig flottustu myndirnar verðlaunaðar sérstaklega í lok keppninnar og því er um að gera að taka myndarlega á því við myndasmíðina.

Vefsíða Lífshlaupsins

Facebook síða Lífshlaupsins

Instagram síða Lífshlaupsins