Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23.07.2023 - 29.07.2023

EYOF Maribor 2023

Sumarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í...
26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
5

Íþróttaþing ÍSÍ 2019 - Þinggögn

17.04.2019

74. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík 3.- 4. maí nk. Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Þingsetning verður föstudaginn 3. maí og hefst kl. 15:00.
Fyrir þinginu liggja 24 tillögur frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og sambandsaðilum og má búast við starfasömu þingi. Öll þinggögn má finna hér á vefsíðu ÍSÍ og tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið má sjá hér. 

Alls eiga 108 fulltrúar sérsambanda og 108 fulltrúar íþróttahéraða fullan seturétt á þinginu, en auka þess eiga 18 íþróttahéruð rétt á einum áheyrnarfulltrúa til viðbótar, og er það breyting frá fyrri þingum. Þingfulltrúafjölda má sjá hér.
Kosningar til framkvæmdastjórnar ÍSÍ fara fram á laugardeginum 4. maí og gert er ráð fyrir að Íþróttaþinginu ljúki á laugardagseftirmiðdag.

Fyrirkomulag þingsins má sjá hér.