Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

75. ársþing ÍA - Gullmerki ÍSÍ veitt

24.04.2019

75. Ársþing ÍA var haldið í Hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum þann 11. apríl sl. Þingforseti var kjörinn Hörður Ó. Helgason. Ársskýrsla framkvæmdastjórnar ÍA 2018 var lögð fram af formanni ÍA, Marellu Steinsdóttur, og má skoða hana hér. Fram kom að rekstur ÍA og aðildarfélaga er með miklum ágætum og mikillar bjartsýni gæti með framhaldið, sérstaklega þegar litið er til þeirra miklu framkvæmda sem nú eru á íþróttamannvirkjum bæjarins. Þær breytingar urðu á varastjórn ÍA að Ragnhildur Inga Aðalsteinsdóttir og Pálmi Haraldsson gáfu ekki kost á sér. Ný í varastjórn voru kjörin þau Hallbera Jóhannesdóttir og Gísli Karlson. Íþróttabandalag Akranes veitti ellefu aðilum Bandalagsmerki ÍA fyrir vel unnin störf fyrir íþróttahreyfinguna á Akranesi. Þau sem heiðruð voru eru þau: Dipu Gosh, Guðný Tómasóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Jónsson, Helgi Magnússon, Jóhannes Guðjónsson, Jónas Hallgrímur Ottósson, Jón Ármann Einarsson, Kristmar Páll Sigurðsson, Ólöf Guðmundsdóttir og Sigurður Arnar Sigurðsson.

Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu. Þráinn afhenti þeim Sigurði Arnari Sigurðssyni, Eydísi Líndal Finnbogadóttur og Trausta Gylfasyni Gullmerki ÍSÍ fyrir mikil og vel unnin störf fyrir ÍA og íþróttahreyfinguna á Íslandi. Helga Sjöfn Jóhannesdóttir fékk Silfurmerki ÍSÍ fyrir vel unnin störf fyrir Íþróttabandalag Akraness. Meðfylgjandi myndir eru frá afhendingu viðurkenninganna á þingi ÍA.

Myndir með frétt