Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

74. Íþróttaþing ÍSÍ 2019

30.04.2019

74. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík 3.- 4. maí nk. Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Þingsetning verður föstudaginn 3. maí og hefst kl. 15:00. Fyrirkomulag þingsins má sjá hér. 

Fyrir þinginu liggja 24 tillögur frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og sambandsaðilum og má búast við starfasömu þingi. Öll þinggögn má finna hér á vefsíðu ÍSÍ og tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið má sjá hér. 

Alls eiga 108 fulltrúar sérsambanda og 108 fulltrúar íþróttahéraða fullan seturétt á þinginu, en auka þess eiga 18 íþróttahéruð rétt á einum áheyrnarfulltrúa til viðbótar, og er það breyting frá fyrri þingum. Þingfulltrúafjölda má sjá hér.

Kosningar til framkvæmdastjórnar ÍSÍ fara fram á laugardeginum 4. maí og gert er ráð fyrir að Íþróttaþinginu ljúki á laugardagseftirmiðdag.

Kjörnefnd Íþróttaþings bárust eftirtalin framboð til framkvæmdastjórnar ÍSÍ vegna 74. Íþróttaþings ÍSÍ 2019. Öll framboð eru löglega fram borin og uppfylla skilyrði 11. greinar laga ÍSÍ, 5. tölulið.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ til fjögurra ára (7)
• Ása Ólafsdóttir
• Gunnar Bragason
• Hafsteinn Pálsson
• Hörður Oddfríðarson
• Ingi Þór Ágústsson
• Knútur G. Hauksson
• Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir
• Olga Bjarnadóttir
• Sólveig Jónsdóttir
• Örn Andrésson

Forseti ÍSÍ var kjörinn til fjögurra ára á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2017 og á því tvö ár eftir af kjörtímabilinu. Þá voru einnig sjö meðstjórnendur kjörnir til fjögurra ára og sjö til tveggja ára, til að ná fram skörun á kjörtímabili stjórnar. Nánar er fjallað um kjör til framkvæmdastjórnar ÍSÍ í 17. grein laga ÍSÍ.

Á Íþróttaþinginu nú verður því kosið um sjö meðstjórnendur til fjögurra ára.
Gert er ráð fyrir að allir frambjóðendur kynni sig á Íþróttaþingi ÍSÍ.