Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Hjólað í vinnuna sett í morgun

08.05.2019

Hjólað í vinnuna var sett í sautjánda sinn í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þátttakendum var boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt bakkelsi. Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, fluttu stutt og hressileg hvatningarávörp. Senunni stal þó Gyða Sól, en hún lagði línurnar fyrir hjólreiðafólk. Mælti hún sérstaklega með því að nota hjálm, vera á góðum breiðum dekkjum og hjóla í rétta átt. Að ávörpunum loknum hjóluðu gestir og þátttakendur verkefnið formlega af stað.

Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á vefsíðu verkefnisins www.hjoladivinnuna.is.

Myndir frá setningarhátíðinni má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ

 

Um Hjólað í vinnuna 2019
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur í sautjánda sinn fyrir Hjólað í vinnuna, dagana 8. – 28. maí. Verkefnið höfðar til starfsfólks á vinnustöðum landsins og hefur þátttakan margfaldast á þeim 16 árum sem liðin eru frá því að verkefnið fór af stað. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitafélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta annan virkan ferðamáta til og frá vinnu. Keppt er um fjölda þátttökudaga en lið geta jafnframt skráð sig í kílómetrakeppnina þar sem keppt er um heildarfjölda kílómetra. Landsmenn hafa tekið verkefninu gríðarlega vel frá upphafi.

 

Myndir með frétt