Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Sýnum karakter ráðstefna og vinnustofa

26.08.2019

Laugardaginn 5. október fer fjórða Sýnum karakter ráðstefnan fram í Háskólanum í Reykjavík þar sem André Lachance verður einn af fyrirlesurum. André hefur unnið með Hafnaboltasambandi Kanada síðan 2001 í þróunarmálum og þjálfaramenntun og sem þjálfari kvennalandsliðs Kanada. Að auki er hann prófessor við Háskólann í Ottawa og heldur fyrirlestra og vinnustofur á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur á síðastliðnu ári bæði haldið vinnustofur fyrir Íþróttasamband Svíþjóðar (RF) og Danmerkur (DIF).Yfirskrift ráðstefnunnar er „Hvernig getur keppnisfyrirkomulag búið til eða eyðilagt karakter?“ Nánari dagskrá kemur innan tíðar. 

Verð fyrir ráðstefnuna er 2.500kr. Vert er að geta þess að uppselt hefur verið á allar fyrri Sýnum karakter ráðstefnur til þessa.

Dagana 3. og 4. október á 2. hæð í nýju Laugardalshöllinni fer fram vinnustofa ætluð þeim sem sjá um fræðslu-og/eða mótamál í íþróttahreyfingunni. Yfirskrift vinnustofunnar er „Meaningful Competition“ sem í lauslegri þýðingu gæti verið „Keppni með tilgang“ og lítur að keppni hjá börnum og ungmennum. André Lachance hefur umsjón með stofunni. 

Markmið með vinnustofunni er að:

  • Auka þekkingu á þroskaferli barna og ungmenna – LTAD (Long Term Athlete Development).
  • Skoða hvernig keppnisfyrirkomulag hefur áhrif á innihald þjálfunar.
  • Skoða og þróa sértækar keppnisreglur.
  • Fá innsýn í hvernig unnið er með keppni í öðrum íþróttagreinum og í öðrum löndum.
  • Vinna með það hvernig haga á samskiptum í breytingaferli.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 40 manns og stendur vinnustofan frá kl. 09:00 - 16:00 báða dagana. Mikið er lagt upp úr hópavinnu. Verð er 12.500kr. Innifalið er hádegismatur, kaffi og léttar veitingar.

Smeltu hér til þess að tryggja þér miða á vinnustofuna og/eða á ráðstefnuna.


Hvað er Sýnum karakter?
Sýnum karakter er átaksverkefni UMFÍ og ÍSÍ um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni.

Vefsíða Sýnum karakter.