Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íþróttavika Evrópu - Lýðheilsuganga á Akranesi

25.09.2019

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands hafa boðið upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og er frítt í sund fyrir göngugarpa að göngum loknum. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og bæta þar með heilsu sína og lífsgæði. 

Í dag, miðvikudaginn 25. september, er komið að síðustu göngunni. Upphaf göngu er hjá Vallanesi kl.18:00. Við mynni Grunnafjarðar er bærinn Hvítanes. Utan og neðan við Hvítanes eru skemmtilegar sandfjörur sem gaman er að ganga um. Grunnifjörður er friðlýstur og samþykktur sem Ramsar svæði. Mikið fuglalíf er þarna árið um kring. Genginn verður 3 – 4 km. hringur. Þetta er létt ganga við allra hæfi og tekur 1-1 ½ klst. Gönguna leiða Elís Þór Sigurðsson og Hjördís Hjartardóttir.

Nánari upplýsingar má nálgast hér.

 

Íþróttavika Evrópu 

Frá 23. - 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Vefsíða verkefnisins er www.beactive.is og þar má nálgast nánari upplýsingar um viðburði vikuna 23. - 30. september. Verkefnið er líka að finna á Facebook hér.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hlaut styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu.