Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Stjórnendanámskeið á Húsavík

11.10.2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) buðu upp á stjórnendanámskeið á Húsavík 10. október síðastliðinn. Vel var mætt á námskeiðið þar sem 11 manns tóku þátt frá fjórum aðildarfélögum HSÞ; Íþróttafélaginu Völsungi, Ungmennafélaginu Eflingu, Ungmennafélaginu Einingu og Skotfélagi Húsavíkur. Auk þess sat framkvæmdastjóri HSÞ, Gunnhildur Hinriksdóttir námskeiðið, í raun í annað sinn þar sem hún sat það einnig á Þórshöfn fyrir nokkrum vikum. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem sá um námskeiðið fyrir hönd ÍSÍ.