Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

ÍBR Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

20.12.2019

Íþrótttabandalag Reykjavíkur fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ fimmtudaginn 19. desember. Viðurkenningin var veitt á sama tíma og tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur 2019. Það var Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, sem afhenti Ingvari Sverrissyni, formanni ÍBR, viðurkenninguna. ÍBR er fimmta íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.

Fyrirmyndarhérað ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi og var samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2015. Viðurkenning fæst að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem ÍSÍ setur og gildir til tveggja ára. Til að gerast Fyrirmyndarhérað þarf meðal annars að útbúa handbók um skipulag og starfsemi.

Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ