Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað

28.12.2019

Í kvöld fór fram afhending viðurkenninga til íþróttafólks sérsambanda og íþróttanefnda ÍSÍ 2019 í Silfurbergi í Hörpu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands veitir viðurkenningar til íþróttamanna og íþróttakvenna sérsambanda ár hvert á sameiginlegu hófi ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna í tengslum við kjör á Íþróttamanni ársins.

Íþróttafólkið fékk afhenta veglega verðlaunagripi sem Ólympíufjölskylda ÍSÍ gefur, en það eru fyrirtækin Arion banki, Icelandair, Sjóva, Toyota og Valitor sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ.

Hér á vefsíðu ÍSÍ má sjá Íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ 2019.

ÍSÍ óskar afreksfólki sérsambanda og íþróttanefnda ÍSÍ innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu 2019 og allra heilla á næsta ári. ÍSÍ vill einnig þakka fyrirtækjunum sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ og fulltrúum þeirra fyrir allan þeirra stuðning.

Fleiri myndir frá hófinu má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.

Hægt er að fylgjast með hátíðinni á Instagram síðu ÍSÍ, @isiiceland, #Íþróttamaðurársins2019