Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Námskeið í Ólympíu 23. maí nk.

03.02.2020

Alþjóða Ólympíuakademían (IOA) var formlega opnuð í Ólympíu í Grikklandi árið 1962 og er enn staðsett þar í borg. Á hverju sumri býður IOA ungum þátttakendum á aldrinum 20-35 ára að taka þátt í tveggja vikna námskeiði þar sem þau fá fræðslu um ólympismann og Ólympíuhreyfinguna.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir einum þátttakanda til að vera fulltrúi ÍSÍ á námskeiðinu sem fram fer 23. maí til 3. júní bæði í Aþenu og í Ólympíu. Þemað í ár er ólympismi og húmanismi. Fræðslan fer fram í fyrirlestrum, hópavinnu, fræðsluferðum og með íþróttaþátttöku.

Þátttakandinn verður valinn úr hópi umsækjenda og greiðir ÍSÍ fyrir flug, gistingu og uppihald á meðan á dvölinni stendur. Leitað er að einstaklingi sem náð hefur mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og /eða sinnt þjálfun eða félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera góð fyrirmynd.

Umsóknum skal skilað rafrænt ekki seinna en 6. mars nk.

Skráning fer fram hér.

ÍSÍ hefur sent þátttakendur til Ólympíu síðastliðin ár og má sjá myndir frá því hér á myndasíðu ÍSÍ

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, 514-4000, ragnhildur@isi.is.
Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org og www.ioa.org.gr