Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Fimleikastjarna með Instagram ÍSÍ í dag

24.02.2020

Sólveig Bergsdóttir, landsliðskona í fimleikum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ í dag.

Sólveig hefur æft fimleika frá tveggja ára aldri og keppir með Stjörnunni og kvennalandsliði Íslands í hópfimleikum. Hún hefur unnið til fjölmargra verðlauna á alþjóðlegum vettvangi með liði sínu og landsliði. Kvennalandslið Íslands hefur náð góðum árangri á Evrópumótum í hópfimleikum, m.a. sigruðu þær mótið 2012, og voru í 2. sæti þrjú Evrópumót í röð 2014, 2016 og 2018. Sólveig hefur verið burðarás í liðinu og ein af þeim reyndari síðustu ár. Síðast vann Sólveig til silfurverðlauna á Norðulandamóti í nóvember 2019 með kvennaliði Stjörnunnar.

Fylgstu með degi í lífi Sólveigar á Instagram síðu ÍSÍ.

Instagram ÍSÍ má sjá hér.