Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

47. Siglingaþing SÍL - Ný sjtórn

27.02.2020

47. Siglingaþing Siglingasambands Íslands (SÍL) fór fram þann 22. febrúar sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu hefðbundin þingstörf og mættu fulltrúar siglingafélaganna til að fara yfir mótaskrá og fjármál sambandsins auk þess að velja því nýja stjórn.

Fáar tillögur lágu fyrir þinginu en þó lá fyrir stjórn tillaga um breytingar á kappsiglingafyrirmælum er varða Íslandsmeistaramót. Nokkur umræða spratt um tillögu stjórnar sem á endanum var felld. Eigi að síður kom fram skýr vilji til þess að SÍL gegndi veigameira eftirlitshlutverki með mótahaldi.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn sambandsins en þau Sigurjón Magnússon Kayakklúbbnum, Ragnar Hilmarsson Þyt, Gunnar Geir Halldórsson Þyt, Marcel Mendes da Costa Brokey gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnasetu en í þeirra stað voru þau Ríkarður Daði Ólafsson Ými, Markús Pétursson Þyt, Hulda Stefania Hólm Þyt, Sigríður Ólafsdóttir Ými, og Ólafur Bjarnason Ými kosin. Aðalsteinn Jens Loftsson verður sjálfkjörinn til áframhaldandi formennsku Siglingasambands Íslands. Stjórnin mun skipta með sér verkum á næsta stjórnarfundi. Andri Stefánsson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu og flutti þar ávarp. 

 

Ársskýrslu SÍL sem lögð var fram á þinginu má sjá hér á vef sambandsins.