Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Sara Rós dansari með Instagram ÍSÍ í dag

05.03.2020

Sara Rós Jakobsdóttir, margfaldur Íslands- og bikarmeistari í dönsum, sýnir fylgjendum ÍSÍ á Instagram hvernig dagur í sínu lífi er, í dag.

Sara Rós keppir fyrir landslið Dansíþróttasambands Íslands ásamt dansfélaga sínum Nicoló Barbizi og eru þau búsett í Danmörku. Þau eru margfaldir Íslands- og bikarmeistari í Standard, Latin og 10 dönsum. Þau keppa reglulega á opnum mótum á vegum Alþjóðadansíþróttasambandsins (WDSF) sem gefa stig á heimslista, sem og heimsbikar-, Evrópubikar-, heims- og Evrópumeistaramótum í öllum dansgreinum (Standard, Latin og 10 dönsum). Á síðastliðnum árum hafa Sara og Nicoló náð glæsilegum árangri á alþjóðlegum mótum víðsvegar um heiminn. Árið 2018 komust þau  í úrslit á Evrópumeistaramóti í 10 dönsum og enduðu í 6. sæti. Þau eru fyrsta íslenska dansparið til að komast í úrslit á EM í fullorðins flokki á efsta getustigi og er það því glæsilegur árangur. Þau hafa einnig margoft verið í topp sætunum á alþjóðlegum mótum síðastliðin ár. Sara Rós og Nicoló voru kjörin dansarar ársins 2017 og 2018. Sara Rós náði einnig þeim árangri með Sigurði Má Atlasyni, en þau voru kjörin dansarar ársins 2008, 2009, 2010, 2012 og 2014.

Sara Rós stefnir á toppinn með Nicoló og er markmiðið þeirra að ná heimsmeistaratitli. Fylgstu með deginum hennar á Instagrami ÍSÍ.

Instagram ÍSÍ má sjá hér.