Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

ÍF og SSÍ vinna saman að framþróun sundíþróttarinnar

06.03.2020

Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) og Sundsamband Íslands (SSÍ) undirrituðu nýverið samstarfssamning sín á milli um gagnkvæma skuldbindingu sérsambandanna um framþróun sundíþróttarinnar, sameiginlegt mótahald fatlaðra og ófatlaðra og leitast með því að tryggja sundfólki bestu mögulegu aðstæður.

Þórður Árni Hjaltested formaður Íþróttasambands fatlaðra og Jón Hjaltason fyrrverandi varaformaður í stjórn SSÍ undirrituðu samninginn sem gildir út árið 2022.

Rétt eins og síðustu ár mun Íslandsmót ÍF og SSÍ í sundi í 50m laug verða sameiginleg framkvæmd sérsambandanna. Sama fyrirkomulag mun einnig gilda við Íslandsmót í 25m laug. Íslandsmeistaramótið í 50m laug fer fram í Laugardalslaug helgina 3-5. apríl nk.

Vefsíða ÍF