Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Dagur í lífi júdókappa

07.04.2020

Sveinbjörn Jun Iura er margfaldur Íslandsmeistari í júdó, en hann keppir í -81kg flokki og hefur verið kjörinn Júdómaður ársins þrisvar sinnum. Sveinbjörn setti markið á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 fyrir nokkrum árum og hefur stefnt að því síðan að keppa fyrir Íslands hönd á leikunum. Nú hefur þeim verið frestað um eitt ár og því þarf Sveinbjörn að endurskipuleggja allar sínar æfingar og keppnir upp á nýtt. Hann æfir eins vel og hann getur þessa dagana og ætlar að leyfa okkur hinum að fylgjast með því hvernig dagur í lífi hans er á Instagram síðu ÍSÍ nk. fimmtudag.

Fylgstu með degi Sveinbjarnar á Instagrami ÍSÍ.

Instagram ÍSÍ má sjá hér.