Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

6 dagar eftir af Hjólað í vinnuna

20.05.2020

ÍSÍ minnir á Hjólað í vinnuna, sem er enn í fullum gangi. Það er tæp vika eftir af verkefninu og alls ekki of seint að vera með. Nú er um að gera að hvetja allt starfsfólk vinnustaðarins til að skrá sig til leiks og velja virkan ferðamáta til og frá vinnu. Hægt er að skrá ferðirnar sínar frá byrjun, eða frá 6. maí. Það er dásamlegt hjóla- og/eða gönguveður þessa dagana og því ekkert því til fyrirstöðu að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu.

ÍSÍ minnir á að þrátt fyrir sérstakar aðstæður í samfélaginu núna er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir um allt land ættu að hvetja allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér.

Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsfólks á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra. Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna hér. 

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna gefur Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4000 eða á netfanginu hjoladivinnuna@isi.is.

Myndin með fréttinni er aðsend mynd af þátttakanda Hjólað í vinnuna.