Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Lilja fær afhentan Kvennahlaupsbol

11.06.2020

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hleypur daglega sér til heilsubótar. Hún ætlar að taka þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á laugardaginn nk. Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, afhenti Lilju Kvennahlaupsbol í gær.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram laugardaginn 13. júní, í 31. sinn. Upplýsingar um hlaupastaði og tímasetningar má sjá á www.kvennahlaup.is. Miðasala fyrir hlaupið sem og sala bola fer fram á www.tix.is. Einnig verður hægt að kaupa og sækja boli á eftirtöldum stöðum fram að hlaupi:

  • Á skrifstofu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ Íþróttamiðstöðinni Laugardal frá kl. 08:30-16:30
  • Í versluninni Scintilla Laugavegi 40 frá kl. 10:00-18:00
  • Í versluninni Barr Living á Garðatorgi frá kl. 12:00-18:00
  • Í sundlauginni Jaðarsbökkum Akranesi frá kl. 6:00-21:00 fimmtudag og föstudag
  • Á skrifstofu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ í Íþróttahöllinni á Akureyri frá kl. 9:00-16:00
  • Hjá Leturstofan Vestamannaeyjum frá kl. kl 16 fimmtudag og föstudag
  • Í Tíbrá á skrifstofu Ungmennafélag Selfoss frá kl. 9:00-15:00.
Hægt verður að kaupa boli eftir hlaup ef birgðir endast.