Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Fjöldatakmörk á samkomum óbreytt til 26. júlí

03.07.2020

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns.

Minnisblað sóttvarnalæknis frá 29. júní 2020.

Þá hefur heilbrigðisráðherra einnig samþykkt tillögu sóttvarnalæknis um breyttar reglur vegna skimunar á landamærum.

Íslendingar og aðrir sem búsettir eru hér á landi og taldir eru hafa hér útbreitt tengslanet verður,við komuna hingað til lands, áfram gert að fara í 14 daga sóttkví eða skimun á landamærum. Ofangreindum einstaklingum verði gert að fara í sóttkví eftir sýnatöku. Þessum einstaklingum verði boðin sýnataka 4-5 dögum eftir upphaf sóttkvíar og ef niðurstaða rannsóknar sýnir ekki merki um veirun þá verði sóttkví hætt. Jákvætt sýni þýðir hins vegar 14 daga einangrun.  

Önnur sýnatakan verði skipulögð af sóttvarnalækni í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu, heilsugæsluna, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis. Önnur sýnataka verði einstaklingum gjaldfrjáls. 

Stefnt er að því að þessi framkvæmd geti hafist ekki síðar en 13. júlí n.k. 

Minnisblað sóttvarnalæknis frá 2. júlí 2020 varðandi skimanir á landamærum og sóttkví ferðamanna.