Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Fjórir Ólympíufarar taka yfir Instagram Ólympíuleikanna

23.07.2020

Í dag er eitt ár þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst.

Fjórir Ólympíufarar munu taka yfir Instagram Ólympíuleikanna og spjalla við gesti síðunnar í dag. Það eru Simone Biles fimleikakona og Nathan Adrian sundmaður ásamt japanska fimleikafólkinu Murakami Mai og Uchimura Kohei. ÍSÍ hvetur fólk til þess að fylgja Instagram síðu Ólympíuleikanna og fylgjast með þessu flotta íþróttafólki svara spurningum og deila sinni reynslu á miðlinum. Spjallið hefst kl.18 að íslenskum tíma.

Instagram Ólympíuleikanna

Instagram Ólympíuleikanna - Japan