Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Gagnlegar upplýsingar KSÍ um COVID

01.08.2020

Á heimasíðu KSÍ er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi COVID-19 vírusinn og knattspyrnuhreyfinguna og eru þær uppfærðar reglubundið, í takt við nýjar útgefnar reglur heilbrigðisyfirvalda. Þar er til dæmis að finna viðbrögð við einkennum um öndunarfærasýkingu hjá leikmanni og önnur gagnleg úrræði er varða starfsemi knattspyrnuhreyfingarinnar sem geta einnig gagnast öðrum íþróttagreinum.

Það getur sparað mikinn tíma og vinnu að kynna sér það sem aðrir hafa útbúið til fræðslu og hefur KSÍ góðfúslega gefið leyfi fyrir því að efni þeirra varðandi COVID-19 sé nýtt af öðrum í hreyfingunni.

Áhugasamir geta kynnt sér efni KSÍ með því að smella hér.