Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Íþróttablaðið á Tímarit.is

14.09.2020

Vefurinn timarit.is geymir mikinn fróðleik úr fortíðinni en þar eru aðgengileg, á rafrænu formi, fjölmörg tímarit sem komið hafa út á Íslandi.

Íþróttablaðið var fyrst gefið út árið 1925 og hafa fyrstu árgangarnir af blaðinu verið aðgengilegir á vefnum í einhvern tíma. Nú nýverið var undirritaður samningur milli ÍSÍ og Landsbókasafns, sem hýsir timarit.is, um að koma öllum árgöngum Íþróttablaðsins og Ólympíublaðsins inn á timarit.is. Verkefninu er nú lokið, en það var styrkt af Ólympíusamhjálpinni. Íþróttablaðið er ómetanleg heimild um íþróttir á Íslandi, okkar helsta afreksíþróttafólk og íþróttahreyfinguna og verður frábært að hafa gott rafrænt aðgengi að þessum upplýsingum í framtíðinni.

Hægt er að nýta sér leitina á síðunni, en þá er ráðlagt að setja gæsalappir utan um leitarstrenginn.

ÍSÍ hvetur fólk til þess að kíkja á timarit.is og skoða Íþróttablaðið.

Til gamans þá eru hér tenglar á sýnishorn frá fréttabréfi ÍSÍ árið 1992 og fréttabréfi ÍSÍ árið 1983