Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Ásdís Hjálmsdóttir með netnámskeið

18.09.2020

ÍSÍ bendir á áhugavert netnámskeið, Afreksskólinn, sem spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud sér um. Afreksskólanum er ætlað að hjálpa fólki að hámarka sinn íþróttaárangur.

Í Afreksskólanum deilir Ásdís sinni 20 ára reynslu sem íþróttakona á heimsmælikvarða og þeim aðferðum sem hafa komið henni í úrslit á öllum helstu stórmótum. Námskeiðið er yfirfarið af Dr. Hafrúnu Kristjánsdóttur íþróttasálfræðingi og deildarforseta íþróttafræðideildar HR.

Afreksskólinn er átta einingar sem dreift er á átta vikur og samanstendur námskeiðið af myndböndum og PDF skjölum með verkefnum. Eftir að fyrstu átta vikunum er lokið hefur nemandi síðan aðgang að öllu efni námskeiðsins hvenær sem honum hentar auk þess sem hann fær aðgang að öllum framtíðaruppfærslum á námskeiðinu.

Í námskeiðinu kafar Ásdís meðal annars djúpt í hvernig fólk getur:

  • Notið íþróttarinnar sem mest
  • Sett sér markmið og náð þeim
  • Byggt upp sjálfstraust
  • Notað sjónmyndaþjálfun og sjálftal
  • Tekist á við mótlæti og pressu
  • Undirbúið sig fyrir keppni
  • Samræmt æfingar með námi eða vinnu
  • og svo ótal margt fleira!

Skráning í fyrstu umferð af námskeiðinu er opin fram á sunnudaginn 27. september og er námskeiðið á sérstöku kynningartilboði. Kynntu þér málið á www.asdistalks.podia.com/afreksskolinn.