Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
19

Glímudrottning með Instagram ÍSÍ

23.09.2020

Jana Lind Ellertsdóttir tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ á föstudaginn nk. 25.september.

Jana Lind er ein fremsta glímukona landsins og aðeins 18 ára sigraði hún í keppninni um Freyjumenið og hlaut sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Jana Lind hefur einnig staðið sig vel erlendis, en þar hefur hún keppt í öðrum fangbragðaíþróttum. Á síðasta ári var hún í útivistarlýðháskóla í Noregi og hóf nám núna í haust við Háskólann í Reykjavík.

Fylgstu með degi í lífi Jönu Lindar, Glímudrottningu Íslands, hér á Instagrami ÍSÍ á föstudaginn, 25.september.