Hugum að hreinlæti
26.10.2020
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vill að gefnu tilefni benda á mikilvægi þess að við höldum áfram að sinna hreinlæti.
Skilaboðin eru:
- Þrífum áhöld
 - Drekktu aðeins úr þínum brúsa
 - Virðum mörk annarra
 - Þvoum hendur
 - Verum heima ef við erum veik
 
Á vef covid.is má sjá upplýsingar um hvernig forðast má smit. Þú getur varið þig og aðra gegn smiti með því að fylgja þessum ráðum:
- Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti.
 - Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna. Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum hér.
 - Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.
 - Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa sem ekki fela í sér snertingu.
 - Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.
 - Þrífðu oftar fleti sem eru mikið notaðir og búnað sem margir nota.
 - Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu.
 - Gert hefur verið myndband sem útskýrir mikilvægi handþvottar sem hluta af sóttvörnum, lengri útgáfa og styttri útgáfa.
 - Hér eru upplýsingar um kórónaveiruna á auðlesnu máli sem voru unnar af Landssamtökunum Þroskahjálp