Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Dagur gegn einelti 2020

08.11.2020

Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu.

Í þjóðarsáttmála sem undirritaður var þann 8. nóvember 2011 segir: „Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er“. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands undirritaði á sínum tíma þennan sáttmála. 

Einelti og hvers kyns ofbeldi getur átt sér stað nánast hvar og hvenær sem er og þar af leiðandi einnig innan íþróttahreyfingarinnar.

Áhrifaríkasta tækið sem íþróttafélag hefur yfir að ráða gegn slíku eru iðkendurnir sjálfir. Þó að meirihluti þeirra eigi ekki beina aðild að einelti/ofbeldi veit þessi hópur oft af slíku löngu áður en hinir fullorðnu fá vitneskju um það. Mikilvægt er að íþróttafélaginu takist að virkja þennan hóp „hlutlausra áhorfenda” til að taka afstöðu gegn einelti/ofbeldi í verki og tilkynna til forráðamanna íþróttafélags eða starfsfólks íþróttamannvirkisins ef þeir verða varir við eða vitni að slíku. Mikilvægt er að trúnaður ríki milli barna og fullorðinna og að nafnleynd sé virt. Æskilegt væri að veita starfsfólki íþróttafélagsins þjálfun í að þekkja einkenni eineltis/ofbeldis.

Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands gaf út bækling árið 2013 sem ber heitið Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun og má finna hann hér, en þar má finna upplýsingar um fyrirbyggjandi aðgerðir, skilgreiningu og helstu birtingarmyndir eineltis.

ÍSÍ bendir einnig á samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, Sigurbjörgu Sigurpálsdóttur, en samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi.

Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða einelti í sínu íþrótta- og æskulýðsstarfi eða eru ekki vissir og vilja fá ráðgjöf varðandi slík mál, geta haft samband við Sigurbjörgu með því að senda póst á sigurbjorg@dmg.is eða hringt í síma 8399100. Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu samskiptaráðgjafa.

Lesa má um samskiptaráðgjafann hér á vefsíðu Geðheilsustöðvar Domus Mentis.