Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Verum hraust - Hlaðvarp ÍSÍ - Karen Knútsdóttir

11.12.2020

Karen Knútsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikstjórnandi með meistaraflokki kvenna í Fram, er sjötti gestur Verum hraust – Hlaðvarps ÍSÍ.

Karen hefur náð frábærum árangri með Fram liðinu og liðið hefur nokkrum sinnum orðið Íslands- og bikarmeistari. Karen var erlendis í atvinnumennsku um árabil og spilaði með þrem mismunandi liðum; Nice í Frakklandi, SönderjyskE í DK og Blomberg/Lippe í Þýskalandi. Karen hefur verið einn lykilleikmaður íslenska landsliðsins í yfir áratug og spilað með liðinu á þrem stórmótum. Karen eignaðist nýlega barn en stefnir ótrauð á að snúa aftur til keppni fljótlega.

Í viðtalinu, sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur, talar Karen um ferilinn, æfingar hérlendis sem og erlendis og ýmislegt annað skemmtilegt.

Viðtalið má sjá hér á Youtube-síðu ÍSÍ.

Verum hraust – Hlaðvarp ÍSÍ er aðgengilegt á öllum helstu veitum, Spotify og Apple iTunes. Einnig má hlusta á viðtalið hér fyrir neðan.