Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
14

Sturla sýnir frá degi í sínu lífi

12.12.2020

Þann 13. desember ætlar Sturla Snær Snorrason, landsliðsmaður í alpagreinum og Ólympíufari, að taka yfir story á Instagrami ÍSÍ.

Sturla Snær keppti á Vetrarólympíuleikunum árið 2018, en hann hefur einnig keppt á alþjóðlegum mótum og heimsmeistaramótum um heim allan síðastliðin ár. Sturla Snær byrj­aði árið 2020 af krafti en hann endaði  í 2. sæti á alþjóðlegu FIS-móti í Pfelders á Ítal­íu í janúar og var með besta tím­ann af öll­um í seinni ferðinni. Sturla Snær undirbýr sig fyrir þátttöku á Vetrarólympíuleikunum í Peking í Kína árið 2022.

Fylgstu með degi í lífi Sturlu hér á Instagrami ÍSÍ á morgun, sunnudaginn 13. desember.