Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
11

Vertu með! Sport for All!

22.01.2021

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) vekja athygli á bæklingi sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Bæklingurinn er gefinn út á átta tungumálum, en nú nýlega bættust arabíska og víetnamska við. Einnig er bæklingurinn til á íslensku, ensku, pólsku, tælensku, litháísku og filippseysku.

Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna; upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.

Efnið er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ. 

Smelltu hér til þess að skoða efnið