Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Fréttatilkynning ÍSÍ varðandi bólusetningar

18.05.2021

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sambandsaðilar þess, hafa undanfarna mánuði sóst eftir því hjá sóttvarnayfirvöldum, bæði með fundahaldi, símtölum og skriflegum erindum, að afreksíþróttafólk landsins fái forgang í bólusetningu, að loknum bólusetningum viðkvæmra hópa og heilbrigðisstarfsfólks, svo það geti með öruggari hætti tekið þátt í alþjóðlegu mótahaldi.

Öllum óskum um slíka fyrirgreiðslu hefur verið neitað staðfastlega og vísað til þess að forgangsröðun heilbrigðisyfirvalda varðandi bólusetningar verði ekki haggað.
Því hefur afreksíþróttafólk landsins þurft að fara óbólusett í stór og krefjandi verkefni og í undankeppnir fyrir stórmót á efsta stigi viðkomandi íþróttar. Það hefur tekið áhættu á því að smitast af kórónuveirunni til að freista þess að viðhalda árangri landsins í íþróttum, árangri sem tekið hefur mörg ár að byggja upp. Að auki hefur íþróttafólkið og fylgdarlið þurft að dvelja langdvölum í sóttkví sem oftar en ekki raskar æfingaáætlunum og mögulega þátttöku í mótum auk kostnaðar sem af því hefur hlotist.

Það vakti því undrun að fá af því fregnir að hópur sem keppir fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision) hafi fengið undanþágu fyrir bólusetningu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) lýsir yfir ánægju með að keppendur fái nú bólusetningu vegna ferða erlendis og mun íþróttahreyfingin krefjast þess að íþróttafólk sem tekur þátt í alþjóðlegum verkefnum fyrir Íslands hönd njóti sömu þjónustu frá yfirvöldum og keppendur á öðrum vettvangi.

Þess má geta að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur útvegað bóluefni fyrir alla þátttakendur í Ólympíuleikum og Ólympíumóti fatlaðra (Paralympics) og mun ÍSÍ fá bóluefni fyrir þann hóp sem fer á leikana. Sú ráðstöfun kemur til með aðkomu IOC en ekki íslenskra yfirvalda og nær einungis til þessa þrönga hóps. Vonast er til að þessi bólusetning hefjist í næstu viku í góðu samstarfi við sóttvarnasvið embættis landlæknis.