Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Fánaberar á setningarhátíð ÓL í Tókýó

22.07.2021

 

Það er ÍSÍ mikil ánægja að tilkynna að Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn Mckee verða fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó á morgun. 
Þetta verður í fyrsta skipti sem fánaberar þátttökulandanna eru tveir, ein kona og einn karl. Á leikunum í Tókýó er nánast jafn fjöldi kvenkyns og karlkyns keppenda og hafa hlutföllin aldrei verið jafnari á nokkrum Ólympíuleikum. Er stefnt að því að á leikunum í París 2024 verði fullu jafnvægi náð í fjölda keppenda af hvoru kyni.
Íslenski hópurinn, með Anton Svein og Snæfríði Sól í fararbroddi, mun verða fyrstur inn á leikvanginn á eftir gríska hópnum sem alltaf gengur fyrstur inn á leikvanginn á öllum Ólympíuleikum og flóttamannaliði Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC Refugee Olympic Team). Farið er eftir japanska stafrófinu og þess vegna raðast Ísland fremst þjóða.
Síðastir inn á leikvanginn verða gestgjafarnir, þ.e. Japanir, en á undan þeim næstu gestgjafar, þ.e. Bandaríkin og Frakkar. Þetta fyrirkomulag er nýjung á setningarhátíð Ólympíuleika.

Setningarhátíðin hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma á morgun og mun RÚV sýna beint frá hátíðinni.