Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
25

Thelma Björg hefur lokið keppni á Paralympics

02.09.2021

Thelma Björg Björnsdóttir sundkona lauk keppni á Paralympics í Tókýó með þátttöku í undanrásum í 400m skriðsundi S6. Thelma synti á tímanum 6:31:67 mín. sem gaf henni 13. sæti í undanriðlunum en ekki sæti í úrslitum. Thelma Björg keppti hins vegar fyrr á leikunum í 100m bringusundi þar sem hún komst í úrslit og hafnaði í 8. sæti.

Thelma Björg er eini íslenski keppandinn á þessum leikum sem hefur áður tekið þátt á Paralympics. Allir aðrir keppendur eru að taka þátt í sínum fyrstu leikum.  Thelma Björg var fánaberi Íslands á setningarhátíð leikanna ásamt Patreki Axel frjálsíþróttamanni en Ólympíuleikarnir og Paralympics í Tókýó eru fyrstu leikarnir þar sem fánaberar landanna á setningarhátíð eru tveir talsins.