Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Göngum í skólann sett í Norðlingaskóla með góðum gestum.

08.09.2021

Setningarathöfn verkefnisins Göngum í skólann var haldin í Norðlingaskóla í morgun.  Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Viðar Garðarsson, formaður fagráðs Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ tók síðan við, flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra hvatti nemendur til að vera virk í lífinu og vera dugleg að hreyfa sig. Því næst kenndi Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra nemendum að segja “Göngum í skólann” á táknmáli og vakti það mikla lukku. Næstur tók Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra til máls og hvatti hann nemendur til að vera dugleg að hjóla eða ganga í skólann og draga foreldrana með sér. Því næst tók Guðmundur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn til máls og minnti krakkana á að lögreglan er til staðar fyrir alla og hvatti hann þau einnig til að gleyma aldrei hjálminum þegar hjólað er. Að lokum hvatti Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu nemendur og gesti til að velja öruggustu leiðirnar í og úr skóla. Sirkus Íslands skemmti svo viðstöddum áður en aðstandendur verkefnisins, ráðherrar, aðstoðaryfirlögreglustjóri, forstjóri Samgöngustofu, nemendur, starfsfólk og aðrir gestir gengu verkefnið formlega af stað. 

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. 

Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 6. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 6. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli.  

Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti hronn@isi.is eða í s: 692-9025. Vefsíða verkefnisins er  www.gongumiskolann.is.  

Myndir með frétt