Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst nk. mánudag 27. september

21.09.2021

 

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 27. september.  Auglýsing um námið var birt hér fyrir skömmu en upplýsingar um skráningar í námið koma hér.   

Skráningin fer fram í Sportabler:   www.sportabler.is/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið t.d. "Námskeiðsgjald á 1. stig" og til verður krafa í heimabanka.  Námskeiðsgögn má nálgast á skrifstofum ÍSÍ í Reykjavík og á Akureyri en einnig er hægt að fá þau send í pósti.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir "Nýr notandi".

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is .